Körfuknattleiksdeild Hauka
Íþróttamiðstöðinni Ásvöllum
220 Hafnarfirði
Kt. 670281-0519
Sími 525 8700
Tölvupóstfang haukar@haukar.is
Skilmálar vefverslunar
Körfuknattleiksdeild Hauka áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.
Afhending vöru – skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Allar vörur erhægt að sækja á skrifstofu Körfuknattleiksdeildar nema um annað sé samið. Sé varan ekki til á lager mun þjónustufulltrúi hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Kaup á miðum á viðburði Körfuknattleiksdeildar: Öll sala á miðum er endanleg og ekki hægt að skila eða skipta. Ef hætt er við viðburð er hægt að fá endurgreiðslu á keyptum miðum.
Kaup á öðrum varningi: Hægt er að skila eða skipta keyptum varningi innan 7 daga sé hann í upprunalegum umbúðum eða auðsjáanlega ónotaður. Hafi varningur verið opnaður eða notaður er ekki hægt að fá honum skilað. Sé varningur gallaður er hægt að fá hann endurgreiddan.
Verð
Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.